top of page

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030 (AR 2030)

PDF skjöl til að prenta út: Fréttatilkynning (smella)   -    Samantekt (smella)   -    Umsögn (smella)

1. Um AR 2030  

Helsta markmið AR 2030 er stöðvun stjórnlausrar útþenslu borgarinnar og þétting byggðar inn á við. BB benda á að Vatnsmýri er eina svæðið í borgarinni þar sem mögulegt er að reisa þétta og blandaða miðborgarbyggð sem megnar að stöðva útþenslu byggðar. En skv. AR 2030 hefst uppbygging þar ekki að neinu marki á skipulagstímabilinu. Þvert á móti mun mikill meirihluti um 24.000 nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu fram til 2030 að óbreyttu rísa í nágrannabæjunum utan núverandi þéttbýlismarka eða í Úlfarsárdal.

2. Um ólögmæta yfirtöku ríkisins  

Þegar íslenska ríkið tók með ólögmætum hætti yfir kjörlendið í Vatnsmýri undir flugvöll 06.07.1946 riðluðust allar áætlanir um þróun höfuðborgarinnar því landið þar var eðlilega sjálfgefið vaxtarsvæði miðborgar Reykjavíkur á seinni helmingi 20. aldar.

3. Um mat á uppsöfnuðu tjóni  

Reykjavík er amk. töfalt víðáttumeiri og helmingi strjálbýlli nú en ella hefði verið án flugvallar í Vatnsmýri. Höfuðborgarsvæðið er eitt dreifbýlasta og óskilvirkasta svæði sinnar tegundar á jörðinni. Í flestum atriðum eru kjör borgarbúa því lakari en ella.

4. Um ábata af byggð í Vatnsmýri  

Ekki er unnt að vinna upp eða bæta fyrir orðið tjón vegna innanlandsflugvallar í Vatnsmýri og rangrar stefnu í skipulags- og þróunarmálum höfuðborgarinnar í 67 ár en almennt gildir að það leiðir til ábata í sjálfu sér að hætta að gera rangt og til tvöfalds ábata að byrja auk þess að gera rétt.

5. Um Hólmsheiði  

Hólmsheiði er að mati flugvallarsinna „of góður“ flugvallarkostur. Hann ryður Miðnesheiði sjálfkrafa út úr myndinni í umræðu um nýja miðstöð innanlandsflugs á SV-horninu og greiðir því um leið fyrir brotthvarfi flugs úr Vatnsmýri .

6. Opinber úttekt  á starfi flugmálayfirvalda  

Frá stríðslokum hafa flugmálayfirvöld á Íslandi ekki haft neitt frumkvæði að því að bæta framtíðarstöðu flugmála á SV horninu í sátt við borgarbúa og til hagsbóta fyrir atvinnulíf,  flugfarþega, flugrekendur og samfélagið allt heldur hafa þau beitt svokallaðri „sérþekkingu á flug- og flugvallarmálum“ til að ryðja úr vegi öllum öðrum valkostum Reykjavíkurborgar og annara um ný flugvallarstæði, nú síðast á Hólmsheiði frá árinu 2005.

7. Um sjúkraflutninga  

Meginatriði í sjúkraflutningum er að bráðveikum og alvarlega slösuðum sé komið í stöðugt ástand sem fyrst, ekki síst áður en lagt er upp í óvissuferð í venjulegu sjúkraflugi svo flutningstími hafi ekki áhrif á batahorfur. Með byggð í Vatnsmýri og stöðvun á útþenslu byggðar má draga úr þörf fyrir akstur og fækkar þá alvarlega slösuðum og látnum í umferðinni auk þess sem sjúkir og slasaðir komast fyrr undir læknishendur.

8. Um málamiðlanir  

Borginni ber að varast málamiðlun, sem felur í sér töf á brottför flugvallar úr Vatnsmýri. Lóðir þar gefa ríki og borg mikinn arð og nægir arður ríkisins t.d. fyrir nýrri miðstöð innanlandsflugs og gott betur (t.d. endurreisn íslenska heilbrigðiskerfisins og LSH) - Töf á uppbyggingu í Vatnsmýri skaðar þjóðarhag um tugi milljarða króna á ári með því ma. að viðhalda áframhaldandi, síaukinni og stjórnlausri útþenslu byggðar. Slíkt kemur því ekki til greina að mati BB. Frekar ætti ríkið að fá skerf af 38% hlut Reykvíkinga í ríkislóðum í Vatnsmýri.

9. Um undirskriftasöfnun  

Í nýjasta átaki flugvallarsinna beittu þeir sem fyrr útúrsnúningum og einhæfum, órökstuddum og tilfinningahlöðnum vaðli um „sjúkraflug“ (Putin Syndrom); etv. hefur átakið kostað á við fullbúinn kosningaslag ... Flugvöllurinn var kosinn burt árið 2001 og átti hann að vera farinn 2016 en ef nú á að ógilda þá kosningu er vegið með mjög alvarlegum hætti gegn lýðræðinu og réttarríkinu og allar aðrar almennar atkvæðagreiðslur, sem fram hafa farið um einstök mál á síðari tímum verða settar í fullkomið uppnám, sbr. td. kosningar um álver í Hafnarfirði, um Icesave og um tillögur Stjórnlagaráðs.

10. Um niðurgreiðslu innanlandsflugs  

Heildarniðurgreiðslur ríkis og borgar á hvern flugfarmiða eru nú samtals um 25.000kr., 5.500kr. vegna reksturs innanlandsflugvalla og 19.500kr. vegna „óinnheimtrar“ lóðaleigu fyrir land borgar og ríkis í Vatnsmýri.

Skipulag
 

 
Athugasemdir, minnisblöð, umsagnir, fréttatilkynningar og yfirlýsingar
 
  • Minnisblað - almannavarnir höfuðborgar og Samtaka um betri byggð 16/10 2012
  • Umsögn  - Samtaka um betri byggð  um samgönguáætlun 2011-2022 27/2 2012
  • Fundargerð - borgarstjóri og Samtök um betri byggð 16/9 2013
  • Yfirlýsing - samkomulag um innanlandsflug 25/10 2013
  • Athugasemd - Samtaka um betri byggð við svör Samgöngustofu 20/1 2014
  • Umsögn - Þingsályktunartilögur um samgönguáætlun 2020-2024-2034 5/3 2020
  • Athugasemdir - Borgarlína 8/5 2020

 
Reykjavíkurflugvöllur
 

 
Um samtökin
 
bottom of page