top of page

Stefnumörkun til framtíðar í Reykjavík.

Samkvæmt úttekt óháðra aðila sem unnu skýrslu (sjá) fyrir Reykjavíkurborg og Samgönguráðuneyti getur þjóðhagslegur ábati af því að Reykjavíkurflugvöllur fari verið rúmir 38 milljarðar á ári (Þetta er niðurstaða úr svokallaðri ParX-skýrslu frá 2007 og ætti að vera um 74 milljarðar á ári á núvirði).

  • Bundinn verði endir á áhrif misvægis atkvæða á á störf og stefnu borgayfirvalda.​

  • Blindaðflugsheimild flugvallar í Vatnsmýri verði afnumin nú þegar og einungis leyft sjónflug. Rekstrarleyfi flugvallarins verði takmarkað við eitt ár í senn, mest í 3 ár alls miðað við 1. janúar 2023 (til 31 desember 2025).​

  • Aðalskipulag Reykjavíkur (R-2040) verði endurskoðað nú þegar með víðtækri aðkomu borgarbúa við stefnumótun.​

  • Samgöngusáttmála ríkis og borgar verði rift. Borgin krefji ríkið um 3,5% á ári í lóðarleigu af borgarlóðum undir flugvellinum í Vatnsmýri: 7 milljarðar kr. á ári frá og með 1. janúar 2023 til að stugga honum burt sem fyrst.​ Borgi ríkið ekki leiguna og fari ekki burt með flugvöllinn hratt beiti borgin öllum tiltækum og löglegum ráðum til að hrekja hann burt.​

  • Forsendan er að Reykjavík hefur um 7 milljarða króna á ári til að fjármagna þetta allt. Ef ekki með lóðarleigunni strax þá með langtíma lántöku með veði í Vatnsmýrarlóðum.

  • Strax og tækifæri gefst verði Vatnsmýrarlóðir seldar hæstbjóðendum.

 

Mögulegur árangur:

 

  • REYKVÍKINGAR EIGNAST ÖFLUGA NÝJA MIÐBORG
    Reykjavík fékk Vatnsmýri úr Seltjarnarneshreppi 1. janúar 1932 fyrir vaxandi borg. Landið fór undir herflugvöll 1941 og var svo afhent Flugfélagi Akureyrar 1946. - Borgarbúar geta loks eignast öfluga NÝJA MIÐBORG, eina með öllu.
     

  • STJÓRNLAUS ÚTÞENSLA STÖÐVAST
    Reykvíkingar endurheimta Vatnsmýrina stöðvast skaðleg og stjórnlaus útþensla  byggðar (Urban Sprawl) á höfuðborgarsvæðinu (HBS). Byggðin á HBS er nú fjórfalt víðáttumeiri og tvöfalt óskilvirkari og dýrari í rekstri en ella hefði orðið án flugvallar.
     

  • PENDLUN MINNKAR
    Akstur inn og út kvölds og morgna (pendlun) vegna umframstarfa í Vesturborginni minnkar. Íbúar í NÝRRI MIÐBORG í og við Vatnsmýri taka smám saman við þessum störfum.
     

  • ÞÖRF FYRIR EINKABÍLAAKSTUR MINNKAR
    Þegar pendlun minnkar og fjöldi borgarbúa getur gengið, hjólað og tekið strætó fækkar bílum á hverja 1.000 íbúa og akstur dregst saman. Til verða tugþúsundir NÚLLBÍLA, sem menga ekkert og kosta ekkert.
     

  • MENGUN MINNKAR
    Svifryksmengun af útblæstri og sliti akbrauta dregst saman vegna minni aksturs en minnkar einnig með fjölgun rafbíla.
     

  • ÚTBLÁSTUR CO2 MINNKAR
    Kolefnisfótspor minnkar vegna færri bíla og minni aksturs en einnig vegna fjölgunar rafbíla.
     

  • LÍSFGÆÐI AUKAST
    Fleiri borgarbúar njóta betra borgarumhverfis, meiri nándar við vinnu, þjónustu, menntun, menningu og afþreyingu og þeir fá aukinn tíma til að njóta samvista, lista og sköpunar.
     

  • LÝÐHEILSA BATNAR
    Minni mengun, bættar neysluvenjur (skyndibitar og bensínstöðvar), meiri hreyfing og minni streita draga úr sjúkdómum og auka lífsgæði.
     

  • LOFTSLAGSMARKMIÐIN NÁST
    Með NÝRRI MIÐBORG í Vatnsmýri og minni akstri og losun CO2 aukast líkur á að borg og ríki efni alþjóðlegar loftslagsskuldbindigar í Parísarsáttmálanum fyrir árið 2030.
     

  • FRAMBOÐ BYGGINGARLANDS VEX
    Reykjavík endurheimtir besta mannvistar- og byggingarland á HBS undir þétta og blandaða NÝJA MIÐBORG fyrir 40–60.000 íbúa og störf.
     

  • SKORTÁHRIF HÚSNÆÐISMARKAÐAR Á HBS HVERFA
    Betri tök nást á húsnæðismarkaði og aukið gagnsæi fæst á byggingarkostnaði og framboði. Áhrif á gjaldmiðil og verðbólgu minnka eða hverfa.
     

  • ÍBÚÐAFRAMBOÐ VEX
    Stöðugleiki næst á fasteignamarkaði og möguleikar skapast á að fullnægja landþörf fyrir íbúa og störf á HBS í amk. 20 ár. Tækifæri skapast til að þróa byggingariðnaðinn og að lækka byggingarkostnað.
     

  • LEIGUVERÐ LÆKKAR
    Aukið framboð og lægri framleiðslukostnaður húsnæðis leiðir til lægra leiguverðs.
     

  • REKSTURSKOSTNAÐUR HEIMILA MINNKAR
    Mestu munar að mörg heimili geta fækkað bílum sínum um einn ef ekki tvo.
     

  • REKSTURSKOSTNAÐUR ATVINNULÍFS MINNKAR
    Þegar byggðin hættir að þenjast út og tekur að þéttast batna skilyrði atvinnurekstrar einkum vegna auðveldari samskipta, aðfanga og dreifingar vöru og þjónustu
     

  • REKSTURSKOSTNAÐUR SVEITARFÉLAGSINS MINNKAR
    Í þéttri byggð eru innviðir hagkvæmari og skilvirkari en í strjálli byggð m.a. vegna styttri gatna, stíga, veitna, þjónustuleiða o.s.fr.v. Lægri útgjöld leiða til lækkunar útsvars.
     

  • SKILYRÐI ALMANNASAMGANGNA BATNA
    Í þéttri byggð vestan Kringlumýrarbrautar skapast góð skilyrði fyrir skilvirkar og sjálfbærar almenningssamgöngur, sem verða kjarninn í góðum og ódýrari STRÆTÓ á öllu HBS.
     

  • FLEIRI GETA GENGIÐ OG HJÓLAÐ
    Í þéttri byggð eru það grundvallar lífsgæði og lýðheilsumál að geta gengið, hjólað og tekið strætó í stað þess að aka í einkabíl; tími sparast vegna styttri leiða og minni tímasóunar við að vinna fyrir og aka of mörgum óþörfum bílum.
     

  • LOFTHELGIN YFIR NESINU ENDUHEIMT
    Með endurheimt lofthelginnar yfir Nesinu vestan Elliðaáa gjörbreytast forsendur skipulags og þróunar byggðar á 22 ferkílómetra (2.200 ha) svæði. Áhrif af þéttri NÝRRI MIÐBORG munu ná frá Vatnsmýri til austurs yfir Kringlumýrarbraut og allt að Elliðaám.
     

  • BÆTT SKILYRÐI FYRIR NÝSKÖPUN
    Með því að fjarlægja flugbrautir, sem hafa heft samskipti Háskóla Ísland, Háskólans í Reykjavík, Landspítala og ýmissa hátæknifyrirtækja verður til frjósamur akur sköpunar og samlegðar í NÝRRI MIÐBORG í Vatnsmýri. Fjórða iðnbyltingin kemst á flug.
     

  • EINANGRUN ROFIN
    Seltjarnarnesbær og Vesturbær Reykjavíkur losna úr hálfgerðri einangrun áratugum saman við það að margar leiðir opnast í gatnakerfinu í NÝRRI MIÐBORG í Vatnsmýri. Kjörnir fulltrúar Reykvíkinga af landsmálalistum fjórflokksins í borgarstjórn og á Alþingi ganga kerfisbundið gegn almannahag. Það hafa þeir gert árum og áratugum saman með því að hunsa brýnustu hagsmuni kjósenda sinna, einkum varðandi herflugvöll í Vatnsmýri. Þannig brjóta þeir stöðugt og vísvitandi gegn grunngildum lýðræðisins og gegn siðareglum um störf kjörinna fulltrúa. Rökrétt er að banna landsmálaframboð í Reykjavík á meðan misvægi atkvæða viðgengst.


 

bottom of page