top of page

Vinningatillaga úr samkeppni - aðalskipulag

Skipulag framtíðarbyggðar í Vatnsmýri

 

Tillaga að þróun og uppbyggingu blandaðrar byggðar í Vatnsmýri grundvallast á vinningstillögu skoska arkitektsins Graeme Massie og samstarfsmanna hans í sérstakri alþjóðlegri samkeppni árið 2008. Meginbreytingin frá tillögu Massie í aðalskipulaginu nú felst í því að vægi íbúðarbyggðar er aukið á kostnað atvinnuhúsnæðis, í samræmi við markmið aðalskipulagsins um betra jafnvægi í dreifingu starfa um borgina. Eins hafa verið gerðar breytingar á skipulagi opinna svæða, og gerð nýrra tjarna innan þeirra er bundin í stefnu aðalskipulagsins. Litið er á framlengingu Snorrabrautar sem framtíðarmöguleika. Sú útfærsla er þó ekki sett fram á skipulagsuppdrætti en gerð grein fyrir henni í texta (sjá kaflann Vistvænar samgöngur, Græna borgin).

 

Alls er gert ráð fyrir um 6.900 nýjum íbúðum og uppbyggingu atvinnuhúsnæðis um 600 þúsund fermetra (jaðarsvæði flugvallar þ.m.t.). Þar af eru 3.600 íbúðir ráðgerðar á skipulagstímabilinu. Búast má því að byggja þurfi þrjá grunnskóla, auk leikskóla, miðað við fullbyggt svæði. Að stærstum hluta eru götureitir skilgreindir sem íbúðarbyggð, en meðfram aðalgötum (breiðgötum) eru skilgreind miðsvæði til að efla blöndun byggðar og tryggja líflega starfsemi á jarðhæð. Gatnakerfið er reglubundið og borgarmiðað. Allar byggingar standa fast við götu og í göturýminu er öllum ferðamátum gert jafnhátt undir höfði. Stærstu göturnar eru skilgreindar sem stofnbrautir og tengibrautir, sbr. skipulagsreglugerð, en lögð er áhersla á að þær séu hannaðar sem götur í þéttri borgarbyggð. Meginviðmið er að byggingar verði ekki hærri en 35 hæða. Til að brjóta upp götumyndir sem hið reglubundna gatnakerfi leiðir af sér er lögð áhersla á fjölbreytni við hönnun og útfærslu húseininga innan randbyggðarinnar. Eins þarf að tryggja fjölbreytt framboð húsagerða og búsetukosta innan hvers götureits, sbr. markmið húsnæðisstefnu í aðalskipulaginu.

 

Nú þegar hefur verið unnið deiliskipulag á uppbyggingarsvæðunum Hlíðarenda og Vísindagörðum í jaðri flugvallarins, og er þar tekið mið af ofangreindum markmiðum um Vatnsmýrarbyggðina. Eftir að aðalskipulagið hefur verið staðfest þarf að vinna hverfisskipulag fyrir svæðið í heild, þar sem skipulag byggðarinnar verður nánar útfært. Áætlaðir áfangar í uppbyggingu og þróun Vatnsmýrarinnar eru sýndir á mynd 6. Skipulag og uppbygging á jaðarsvæðum og öðrum áhrifasvæðum flugvallarins þarf að taka mið af gildandi skipulagsreglum um Reykjavíkurflugvöll, meðan enn er flugstarfsemi í Vatnsmýri.

Skipulag
 

 
Athugasemdir, minnisblöð, umsagnir, fréttatilkynningar og yfirlýsingar
 
  • Minnisblað - almannavarnir höfuðborgar og Samtaka um betri byggð 16/10 2012
  • Umsögn  - Samtaka um betri byggð  um samgönguáætlun 2011-2022 27/2 2012
  • Fundargerð - borgarstjóri og Samtök um betri byggð 16/9 2013
  • Yfirlýsing - samkomulag um innanlandsflug 25/10 2013
  • Athugasemd - Samtaka um betri byggð við svör Samgöngustofu 20/1 2014
  • Umsögn - Þingsályktunartilögur um samgönguáætlun 2020-2024-2034 5/3 2020
  • Athugasemdir - Borgarlína 8/5 2020

 
Reykjavíkurflugvöllur
 

 
Um samtökin
 
bottom of page